Ellidaar-teljari

Staða fiskteljarans í Elliðaánum 

Þegar útsending er í gangi er .LIVE  merki neðst til hægri í myndfletinum.

Teljarinn er staðsettur á móts við rafstöðina í Elliðaánum.

Upplýsingarnar sem birtast eru í beinni útsendingu frá gluggaviðmóti fiskteljarans.

Vinstra megin á efri hluta skjámyndarinnar, birtist á gulum fleti fjöldi fiska sem gengið hafa upp (Up) og niður (Down) um teljarann frá því að opnað var fyrir göngu fiska um hann í vor.

Hægra megin á efri hluta skjámyndarinnar, birtist á ljósgulum fleti fjöldi fiska sem gengið hafa upp (Up) og niður (Down) um teljarann á yfirstandandi sólarhring (Today).

Á skjámyndinni neðanverðri er heildargöngu fiska um teljarann skipt upp í fjölda laxa og silunga samkvæmt stærðarflokkun sem byggir á stærðarmati fiskteljarans.